top of page

UM OKKUR

Við erum sérfræðingar í rakavörnum og loftgæðum

Humielectro sérhæfir sig í lausnum gegn raka og lélegum loftgæðum fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Við bjóðum upp á vottaðar tæknilausnir sem vinna að rót vandans með því að þurrka veggi, bæta loftskipti og stuðla að heilbrigðara innilofti.

 

Að baki Humielectro stendur alþjóðlegt teymi verkfræðinga, arkitekta, byggingatæknifræðinga og sérfræðinga á sviði rakavarna og loftgæða með yfir 30 ára reynslu. Lausnir okkar byggja á rannsóknum, viðurkenndri tækni og evrópskum gæðastöðlum með það að markmiði að skapa heilbrigðara og öruggara umhverfi til framtíðar.

73C76B5A-4A0B-45A2-8346-5FE1E59DEF34.png

RAKI ER VANDAMÁLIÐ

HUMIELECTRO ER LAUSNIN

Saga Humielectro á Íslandi

Humielectro á Íslandi varð til eftir persónulega reynslu eins eigenda fyrirtækisins af þrálátum rakavandamálum meðan hann bjó á meginlandi Evrópu.

Eftir að hafa reynt ýmsar hefðbundnar lausnir án varanlegs árangurs kynntist hann lausnum Humielectro af eigin raun.

Bæði loftræstikerfi og rafosmósutæki voru sett upp á heimilinu á fljótlegan og einfaldan hátt. Niðurstaðan var að rakavandamálin hurfu, loftgæðin umturnuðust og vandamálið kom ekki aftur.

 

Þessi reynsla varð upphafið að Humielectro á Íslandi. Markmið okkar er að hjálpa öðrum að leysa rakavandamál við rót þeirra með lausnum sem hafa sannað gildi sitt í þúsundum bygginga víðs vegar um heiminn.

Starfsfólk

Birgir Kristinsson 

Sími: 662-3277

Email: birgir@humielectro.is

Helgi Steinn Björnsson

Sími : 659-1203

Email: helgi@humielectro.is

bottom of page