top of page

Svefn ræðst af loftgæðum

Rannsóknir hafa sýnt að raki og lélegt inniloft hafa mikil áhrif á svefn, afköst og einbeitingu daginn eftir.

Áhrif sem sjást ekki strax

Heilsufarsáhrif raka og myglu geta þróast yfir langan tíma áður en vandamálið verður sýnilegt.

Raki í húsnæðum

Rakavandamál hafa komið upp á allt að helmingi íslenskra heimila samkvæmt íslenskum rannsóknum.

Börn eru viðkvæmust

Börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum raka, myglu og lélegra loftgæða innandyra.

Hreint og ferskt loft í rakalausu umhverfi er ein af grunnforsendum góðrar heilsu, vellíðunar, svefns og afkasta í daglegu lífi.

Raki, mygla og léleg loftskipti hafa mikil áhrif á loftgæði innandyra og þar með á heilsu og líðan. Vandamálið er oft ekki sýnilegt strax, en getur með tímanum stuðlað að krónískum heilsufarsvandamálum, svefntruflunum, öndunarvandamálum og skertum lífsgæðum.

HEILBRIGÐARA UMHVERFI, betri lífsgæði 

FYRIR HEILSUNA

HVERNIG HEFUR RAKI ÁHRIF Á HEILSUNA?

Of mikill raki innandyra getur skapað kjöraðstæður fyrir myglu, sveppi, bakteríur og rykmaura. Þegar rakastig helst hátt yfir lengri tíma eykst örveruvöxtur og losun agna út í inniloftið. Slíkar aðstæður geta skapað auknar líkur á heilsufarsvandamálum, svefntruflunum og skertri líðan hjá þeim sem dvelja í húsnæðinu.

Of mikill raki getur stuðlað að myglu, sveppum, rykmaurum og örveruvexti.

Fólk ver að meðaltali um 90% tíma síns innandyra.

90%

Heilsufarsáhrif raka og lélegra loftgæða

Höfuðverkur og þreyta
Getur valdið þreytu og höfuðverk.
​​

Svefngæði

Getur haft áhrif á svefn og hvíld

Ofnæmiseinkenni
Getur valdið nefstíflu, hósta, hnerrum, ertingu í hálsi og  ofnæmiseinkennum.

Öndunarerfiðleikum og astma
Getur aukið einkenni hjá fólki með viðkvæm öndunarfæri.

Ertingu í augum og húð

Getur valdið kláða, roða og húðvandamálum.

Skert einbeiting

Getur haft áhrif á einbeitingu og afköst.

Hormónajafnvægi
Getur haft áhrif á eðlilega hormónastarfsemi

Andleg heilsa

Getur haft áhrif á  vellíðan, kvíða og þunglyndi.

Rannsóknir

Háskóli Íslands
1981 - 2020

Allt að helmingur íslenskra heimila hefur glímt við rakavandamál samkvæmt rannsóknum Björns Marteinssonar við Háskóla Íslands. Niðurstöðurnar undirstrika hversu útbreiddur rakavandi er í íslensku húsnæði og hversu mikilvægt er að bregðast við honum áður en hann leiðir til skemmda, myglu og skertra loftgæða.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin 2009

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) eru íbúar rakaskemmdra eða myglaðra bygginga allt að 75% líklegri til að glíma við öndunarfæraeinkenni og astma. Niðurstöðurnar sýna skýr tengsl milli raka, myglu og heilsufarslegra áhrifa og undirstrika mikilvægi heilbrigðs innilofts fyrir heilsu.

Technical University of Denmark 
2016

Rannsóknin sýnir að betri loftræsting og lægra magn koltvísýrings innandyra getur bætt svefngæði, einbeitingu og afköst daginn eftir. Niðurstöðurnar benda til þess að loftgæði hafi bein áhrif á hvernig við sofum, hugsum og störfum. Heilbrigt inniloft er því grunnforsenda góðrar heilsu, vellíðanar og daglegrar frammistöðu.

bottom of page